Bílferðir með börnunum
Ferðalög geta tekið á, sérstaklega langar bílferðir, en það má gera ferðalagið mun auðveldara og skemmtilegra með ýmiskonar afþreyingu á leiðinni. Við fjölskyldan ferðumst mikið bæði innanlands og utan og hér er eitthvað sem hefur reynst okkur vel. Frúin í Hamborg Gamall góður og klassískur leikur sem klikkar aldrei. Bannað að segja já, nei, svart og hvítt! Gettu dýr Þessi er uppáhalds hjá okkar börnum. Einn í fjölskyldunni velur dýr í hljóði og hinir reyna að komast að því um hvaða dýr ræðir með að spyrja spurninga sem krefjast eingöngu já og nei svars. Sá sem finnur hvaða dýr um ræðir velur næst dýr og svo koll af kolli. Gettu persónu eða…
Einfalt skipulagskerfi sem virkar
Upphaflega skrifaði ég þenna pistil fyrir Foreldrahandbókina í fyrra og veit ég að margir hafa nýtt sér þetta kerfi, en mig langar að endurbirta hann hér og vona að enn fleiri geti nýtt sér. Flest viljum við ala upp hjálpsöm og kurteis börn ekki satt? En það er kannski ekki alltaf eins auðvelt í framkvæmd og það hljómar. Fjölmargar rannsóknir* sýna að það er börnum hollt að hjálpa til á heimlinu, alveg frá unga aldri. Það eykur félagslegan þroska barna og hefur góð áhrif á atferli þeirra. Rannsóknir þar sem börnum er fylgt eftir í ára raðir sýna að börn sem sinna heimilisstörfum plumma sig betur sem fullorðin, þau hafa betri starfsframa, betra…
Sumarið
Sumarfríið er hafið hjá grunnskólabörnum landsins og fljótlega komast leikskólabörnin og vonandi foreldrarnir líka í langþráð frí. Sumarfríið er (mis)langur tími sem er góður til að skapa saman dýrmætar og skemmtilegar minningar. Mikilvægt er samt að njóta stundarinnar og hversdagsleikans, því í raun er það hversdagsleikinn sem skipar stærstan sess í lífi okkar flestra. Við megum ekki alltaf vera að bíða eftir stóru viðburðunum og gleyma að njóta í núinu. Því þetta snýst jú ekki um áfangastaðinn heldur ferðalagið. Fyrir nokkrum árum síðan dró ég fram stórt blað og bað börnin að teikna það sem þau langaði að gera í sumarfríinu sínu. Þau fylltu blaðið af allskyns hugmyndum bæði stórum og smáum, því…
Páska ratleikur
Þennan póst skrifaði ég fyrir Foreldrahandbókina í fyrra en ákvað að birta hann hér núna ef hann gæti nýst einhverjum ykkar við páskaeggja ratleikinn. Það hefur verið hefð á okkar heimli fyrir því að hafa ratleik fyrir börnin á páskadagsmorgun sem leiðir þau að eggjunum sínum. Þetta höfum við gert alveg frá því elsta stelpan okkar var 2 ára. Framan af voru þetta einfaldar myndir sem við fundum netinu og földumá einföldum stöðum. Eftir því sem börnin eldast hefur vísbendingunum fjölgað og þeim komið fyrir á erfiðari stöðum. Fyrir 2 árum síðan fannst okkur þetta orðið heldur auðvelt fyrir elstu 2 börnin og ákvað maðurinn minn því að breyta aðeins til. Hann skellti…
Heimatilbúinn leir
Börnin mín elska að leira, sérstaklega þau 2 yngstu. Það er svo ótrúlega þægilegt og einfalt að búa leirinn bara til heima, í hvaða lit sem óskað er eftir, með glimmeri fyrir þá sem það vilja og hann er auðvitað alveg laus við allan óþverra. Tala nú ekki um hversu miklu ódýrari hann er…..og betri líka! Þetta tekur án gríns aðeins örfáar mínútur, svo á skömmum tíma er hægt að búa til leir í öllum regnbogans litum. 1/2 dl salt 1 tsk cream of tartar 1/2 bolli hveiti 1/2 bolli vatn 1 1/2 tsk olía matarlitur glimmer ef vill (ég nota kökuglimmer) Þurrefnin sett í pott og blandað vel saman. Matarliturinn settur út…
Þvoðu fatnað og rúmföt fyrir notkun!
Nýr fatnaður og rúmföt geta innihaldið leifar af ýmsum óæskilegum efnum sem geta verið skaðleg heilsunni og umhverfinu. En með eftirfarandi ráðum má minnka áhættuna á því. Varasöm og óæskileg efni geta verið notuð í textílframleiðslu af ýmsum ástæðum, t.d: Til að lita efnin eða bleikja þau, mýkja eða gera straufrí. Fatnaður getur líka innihaldið efni sem eru eldtefjandi, berjast gegn myglu og minnka svitalykt, í nýjum fatanaði má einnig stundum finna leifar af skordýraeitri. Þessi óæskilegu efni fylgja fatnaði og sængurfötum þegar þau eru keypt og geta valdið ofnæmisviðbrögðum svo sem útbrotum og kláða. Nokkur þessara efna eru grunuð um að geta raskað hormónajafnvægi og jafnvel verið krabbameinsvaldandi. Leifar þessara óæskilegu efna…
Flúorlaust tannkrem
Margir eru farnir að kjósa náttúrleg tannkrem án flúors og annara efna sem talist geta skaðleg, sérstaklega fyrir börnin sín þar sem þau eiga það flest til að kyngja tannkreminu á fyrstu mánuðum/árum tannburstunar. Allt sem við setjum í munninn þó við kyngjum því ekki kemst að einhverju leyti út í blóðrásina og því fyllsta ástæða til þess að velja vel þegar kemur að því hvað við setjum í okkur og á, einkum þegar kemur að börnunum okkar. Náttúrulega tannkremið frá Jack N’Jill er glútenlaust, inniheldur engan sykur, enga gervisætu, ekkert flúor, engin litarefni, ekkert SLS (Sodium Lauryl Sulfate) né rotvarnarefni. Hinsvegar eru þau tannkrem sem við þekkjum oftar en ekki uppfull af ýmsum…
Tónlist
Við vitum öll hvaða áhrif tónlist hefur á okkur sjálf, hún hefur í raun ótrúleg áhrif á skap okkar og líðan. Það má hressa sig aldeilis við með því að hlusta á jákvæða og peppandi tónlist og að sama skapi getur tónlist með þungum tónum og neikvæðum textum dregið úr manni mikla orku. Börn eru engin undanteknig og tónlist hefur mikil áhrif á þau líka, hröð og hressandi tónlist tjúnar þau meira upp og róleg tónlist róar þau. Á okkar heimili er spilað mikið af tónlist og öll börnin mín 4 elska tónlist, þau hafa öll snemma fengið áhugann og dillað sér mikið í takt og haft gaman af. Sá yngsti er þar…