Kjötbollur
Þegar ég var yngri og heyrði orðið kjötbollur, voru kjötfarsbollur alltaf það fyrsta sem mér datt í hug, enda þekkti ég ekki aðrar en slíkar, ýmist steiktar á pönnu eða soðnar með hvítkáli, þótti þær góðar þá en hef aldrei eldað slíkar sjálf og borða ekki í dag. Þegar ég fluttist til Danmerkur kynntist ég nefnilega alvöru kjötbollum eða „frikadeller“ og höldum við mikið upp á slíkar á okkar heimili. Þessi uppskrift hefur fylgt mér frá því við bjuggum í Danmörku, er ljúffeng og ótrúelga einföld, því bollurnar eru bakaðar í ofni, ekkert snúa vesen á pönnu eða slíkt. 500 g nautahakk (endilega nota alveg hreint hakk) 1/2-1 laukur, fer eftir stærð (ég…
Sætkartöflu vöfflur
Þessar vöfflur eru dásamlegar á bragðið og fullkomnar fyrir lilta munna, þær eru passlega mjúkar að innan og örlítið stökkar að utan. Fullar af góðu hráefni, góðar á bragðið, góðar fyrir börn á öllum aldri og fullorðna. 1 bolli hveiti 1/2 bolli heilhveiti 1 bolli hafrarmjöl (sett í blandara/matvinnsluvél og gert fínna) 3 tsk lyftiduft 1 1/4 tsk kanill (ceylon kanill) 1/8 tsk sjávarsalt 2 egg 1 bolli kókosmjólk 1/2 bolli AB mjólk 40 g smjör, brætt 1/2 bolli sæt kartöflu mauk (sætar kartöflur gufusoðnar og maukaðar með smá soðvatni) 3 tsk Sukrin Gold Byrjað er á að búa til sætkartöflumauk sé það ekki þegar til í ísskápnum, en það er gert með…
Banana lummur – barna og fullorðins
Ótrúlega einfaldar, gómsætar og bráð hollar fyrir alla munna heimilisins, tilvaldar í nestisboxið, sem millimál eða þegar komið er heim úr skóla/leikskóla í staðinn fyrir brauðið sem svo oft er leitað í. 1 egg 1 vel þroskaður banani 1 dl haframjöl (ca 30g) Kanill, ég nota alltaf Ceylon kanil og mæli indregið með honum Bananinn er stappaður vel, hrært saman við eggið og haframjölið og svo er sett „dash“ af kanil, algjört smekksatriði hversu mikið. Steikt á smurðri pönnu (kókosolía, smjör) við meðalhita þar til lumman er föst í sér og svo snúið við og steikt á hinni hliðinni í smá stund. Passlegt að gera t.d. 3 litlar lummur í einu á lítilli…
Jarðaberja smoothie
Margir smoothie-ar eru eiginlega bara innantóm orka, sérstaklega þeir sem innihalda nánast eingöngu ávexti og standa því ekki sérlega lengi með manni. En þessi er frábrugðinn því hann inniheldur bæði AB mjólk, hafragraut og chia fræ sem gerir hann því sérlega næringarríkan og saðsaman. Hann hentar því vel sem millimál bæði fyrir börn og fullorðna, t.d. fullkominn eftir skóla eða leikskóla í staðinn fyrir „drekkutímann“ eða í nesti í skólann, mín börn eru td. mjög hrifin af því að taka þennan með sér í nesti. 2 bollar frosin jarðaber 1 vel þroskaður banani 1 bolli kaldur hafragrautur* eða 1/2 bolli hafrar (mér þykir mikið betra að nota hafragraut) 1 bolli AB mjólk 1…
Kókos og súkkulaði granóla
Þetta granóla er í algjöru uppáhaldi á okkar heimli er mjög fljótlegt að búa til og slær allstaðar í gegn. 3 bollar trölla hafrar 1/2 bolli möndlur, saxaðar 1/2 bolli pecan hnetur, saxaðar 2 msk kakó 1,5 tsk vanilluduft eða 3 tsk vanilludropar 5 msk akasíu hunang* 1 msk kókosolía 4 msk chia fræ 1 bolli kókosflögur 70g dökkt súkkulaði gróft saxað, ég nota suðusúkkulaði Höfrum, möndlum, pecan hnetum, kakói og chia fræjum blandað vel saman í skál. Hunangið og kókosolían sett á pönnu og hitað þar til vel fljótandi (ef notaðir eru vanilludropar skal setja þá á pönnuna). Hafrablöndunni hellt út á og blandað vel þannig að hunangið og olían hjúpi allt saman.…
Núðlur í nesti
Núðlur eru frábær matur til að hafa í vikulok því út í þær má nýta ýmsa afganga og það sem til er í ísskápnum. Tilvalið sem nesti í vinnu eða skóla og þær eru alls ekki síðri kaldar. Það er hægt setja hvað sem hugurinn girnist út í og krydda með ýmsum kryddum, en hér ætla ég að deila vinsælustu samsetningunni á okkar heimili: 1 pakki eggjanúðlur 3 egg Kjúklingur, eldaður, magn eftir smekk 1 Rauðlaukur, skorinn í þunnar ræmur Gulrætur, skornar í þunna strimla, magn eftir smekk 2-3 tsk sesamolía Olía til steikingar, góður slatti Vatn sett í pott og suðan látin koma upp, slökkt undir og núðlurnar settar útí og látnar…
Bananabrauð
Hún Júlíana á Mamie.is snappinu deildi í sumar uppskrift af ótrúlega einföldu, bráðhollu og góðu bananabrauði sem ég alveg féll fyrir og ég fékk leyfi hjá henni til að deila uppskriftinni með ykkur hér. 1 1/2 bolli hafrar 1/4 tsk salt (ég nota alltaf Maldon eða Himalaya) 1 tsk matarsódi (ég nota ál frían frá Kaja Organic) 1/2 tsk vanilludropar (ég nota hreint vanillu duft í staðinn, 1/4 tsk) 1 dós kókosjógúrt frá BioBú (ég á það sjaldnast til og nota í staðinn 170g af Ab mjólk) 1/4 bolli ólífuolía 2 egg 2 vel þroskaðir og stappaðir bananar Öllu blandað saman og sett í vel smurt form, reyndar enn betra að klæða það með…
Pizzu bitar í nestisboxið
Að útbúa spennandi nesti fyrir börnin í skólann er alveg meira en að segja það stundum. Á okkar heimili er lagt mikið uppúr því að þau fari með ávexti og grænmeti með sér. En þau tauta nú stundum um það að „allir“ hinir fái að koma með brauðmeti eða annað með sér í nesti. Það er því gaman að bjóða stundum uppá einhverja tilbreytingu í nestisboxið. Ég spyr börnin gjarnan hvað þau langi að taka með sér og 9 ára sonur minn svarar nánast alltaf því sama: „Pizzu“, enda er hann forfallinn pizzu aðdáandi drengurinn. Ég ákvað því að búa til nestisvæna pizzu og útkoman sló í gegn meðal allra á heimilinu, meira…
Kókos banana möffins
Þessar eru ótrúlega mildar og góðar á bragðið, mátulega mjúkar og henta vel í litlar hendur. Yngsti minn alveg eeeellllskar þessar. 3 dl haframjöl 1,5 dl hveiti 0,5 dl kókosmjöl 1 tsk lyftiduft 1 tsk kardemmommur (duft) 4 msk kókosolía (fljótandi) 1 egg 2 dl kókosmjólk 1 banani 1 dl rifið epli Kókosmjöl til að strá yfir Blandið saman öllum hráefnunum, stappið bananann og bætið úti. Hrærið vel saman og setjið í muffinsform og stráið kókosmjöli yfir. Bakað við 180 gráður í uþb. 20 mínútur. Gott að setja þær sem eftir verða beint í frystinn og eiga til að grípa í. Alls ekki verra að hita þær svo örlítið áður en á að…