• Jarðaberja smoothie

      Margir smoothie-ar eru eiginlega bara innantóm orka, sérstaklega þeir sem innihalda nánast eingöngu ávexti og standa því ekki sérlega lengi með manni. En þessi er frábrugðinn því hann inniheldur bæði AB mjólk, hafragraut og chia fræ sem gerir hann því sérlega næringarríkan og saðsaman. Hann hentar því vel sem millimál bæði fyrir börn og fullorðna, t.d. fullkominn eftir skóla eða leikskóla í staðinn fyrir „drekkutímann“ eða í nesti í skólann, mín börn eru td. mjög hrifin af því að taka þennan með sér í nesti. 2 bollar frosin jarðaber 1 vel þroskaður banani 1 bolli kaldur hafragrautur* eða 1/2 bolli hafrar (mér þykir mikið betra að nota hafragraut) 1 bolli AB mjólk 1…

  • Barnasæla

    Tengdamamma mín gerir heimsins bestu hjónabandssælu, á því leikur enginn vafi og uppskriftin er mér afar kær, en hún er full af sykri og sykraðri sultu bara svona eins og gengur og gerist með þessar gömlu góðu kökur. Ég ákvað því að nota uppskriftina hennar og búa til aðeins hollari útgáfu sem vel má gefa litlum börnum smakk af án þess þó að fylla þau af sykri. Í stað þess að nota hefðbundna rabbabarasultu eins og venjan er í svona köku bjó ég einnig til sykurlausa sultu, en ég átti rabbabara og afþví allir á mínu heimili hreinlega elska hindber ákvað ég að gera hindberjasultu sem hentar fullkomlega með. Afvþí að uppskriftin var…

  • Kókos og súkkulaði granóla

    Þetta granóla er í algjöru uppáhaldi á okkar heimli er mjög fljótlegt að búa til og slær allstaðar í gegn. 3 bollar trölla hafrar 1/2 bolli möndlur, saxaðar 1/2 bolli pecan hnetur, saxaðar 2 msk kakó 1,5 tsk vanilluduft eða 3 tsk vanilludropar 5 msk akasíu hunang* 1 msk kókosolía 4 msk chia fræ 1 bolli kókosflögur 70g dökkt súkkulaði gróft saxað, ég nota suðusúkkulaði Höfrum, möndlum, pecan hnetum, kakói og chia fræjum blandað vel saman í skál. Hunangið og kókosolían sett á pönnu og hitað þar til vel fljótandi (ef notaðir eru vanilludropar skal setja þá á pönnuna). Hafrablöndunni hellt út á og blandað vel þannig að hunangið og olían hjúpi allt saman.…

  • Núðlur í nesti

    Núðlur eru frábær matur til að hafa í vikulok því út í þær má nýta ýmsa afganga og það sem til er í ísskápnum. Tilvalið sem nesti í vinnu eða skóla og þær eru alls ekki síðri kaldar. Það er hægt setja hvað sem hugurinn girnist út í og krydda með ýmsum kryddum, en hér ætla ég að deila vinsælustu samsetningunni á okkar heimili: 1 pakki eggjanúðlur 3 egg Kjúklingur, eldaður, magn eftir smekk 1 Rauðlaukur, skorinn í  þunnar ræmur Gulrætur, skornar í þunna strimla, magn eftir smekk 2-3 tsk sesamolía Olía til steikingar, góður slatti Vatn sett í pott og suðan látin koma upp, slökkt undir og núðlurnar settar útí og látnar…

  • Bananabrauð

    Hún Júlíana á Mamie.is snappinu deildi í sumar uppskrift af ótrúlega einföldu, bráðhollu og góðu bananabrauði sem ég alveg féll fyrir og ég fékk leyfi hjá henni til að deila uppskriftinni með ykkur hér. 1 1/2 bolli hafrar 1/4 tsk salt (ég nota alltaf Maldon eða Himalaya) 1 tsk matarsódi (ég nota ál frían frá Kaja Organic) 1/2 tsk vanilludropar (ég nota hreint vanillu duft í staðinn, 1/4 tsk) 1 dós kókosjógúrt frá BioBú (ég á það sjaldnast til og nota í staðinn 170g af Ab mjólk) 1/4 bolli ólífuolía 2 egg 2 vel þroskaðir og stappaðir bananar Öllu blandað saman og sett í vel smurt form, reyndar enn betra að klæða það með…

  • Kókos banana möffins

    Þessar eru ótrúlega mildar og góðar á bragðið, mátulega mjúkar og henta vel í litlar hendur. Yngsti minn alveg eeeellllskar þessar. 3 dl haframjöl 1,5 dl hveiti 0,5 dl kókosmjöl 1 tsk lyftiduft 1 tsk kardemmommur (duft) 4 msk kókosolía (fljótandi) 1 egg 2 dl kókosmjólk 1 banani 1 dl rifið epli Kókosmjöl til að strá yfir Blandið saman öllum hráefnunum, stappið bananann og bætið úti. Hrærið vel saman og setjið í muffinsform og stráið kókosmjöli yfir. Bakað við 180 gráður í uþb. 20 mínútur. Gott að setja þær sem eftir verða beint í frystinn og eiga til að grípa í. Alls ekki verra að hita þær svo örlítið áður en á að…