Spínat vöfflur
Ljúffengar vöfflur með spínati sem henta vel sem millimál eða fingramatur. 2 vel þroskaðir bananar 40 g ferskt spínat 2 egg 1 tsk hreint vanilluduft 1/2 dl mjólk (kúamjólk, möndlumjólk eða hvað mjólk sem er) 1 1/2 dl fínt rúgmjöl Skolið spínatið vel og þerrið, setjið í skál ásamt bönunum og blandið með töfrasprota. Öllum hinum hráefnunum bætt út í og hrært vel. Setjið örlitla kókosolíu á vöfflujárnið (ég nota alltaf fyrir belgískar vöfflur) og magnið af deiginu sem sett er í fer eftir því hversu stórar þær eiga að vera. Ég set bara smá slettu á miðjuna á járninu og það nær alls ekki út í kantana. Mér finnst hentugt að hafa…