Jarðaberja smoothie
Margir smoothie-ar eru eiginlega bara innantóm orka, sérstaklega þeir sem innihalda nánast eingöngu ávexti og standa því ekki sérlega lengi með manni. En þessi er frábrugðinn því hann inniheldur bæði AB mjólk, hafragraut og chia fræ sem gerir hann því sérlega næringarríkan og saðsaman. Hann hentar því vel sem millimál bæði fyrir börn og fullorðna, t.d. fullkominn eftir skóla eða leikskóla í staðinn fyrir „drekkutímann“ eða í nesti í skólann, mín börn eru td. mjög hrifin af því að taka þennan með sér í nesti. 2 bollar frosin jarðaber 1 vel þroskaður banani 1 bolli kaldur hafragrautur* eða 1/2 bolli hafrar (mér þykir mikið betra að nota hafragraut) 1 bolli AB mjólk 1…
5 mínútna „lasagna“
Hér á heimilinu elskum við lasagna og gerum nokkuð oft, uppskriftin er einföld og fljótleg. Ég hef aldrei nokkurn tímann gert hvítu sósuna heldur hef alltaf notað kotasælu í staðinn og skipti út plötunum fyrir tortilla kökur fyrir möööörgum árum síðan. Hér er uppskrift að svindl lasagna sem litli prinsinn minn elskar og mér finnst gott að grípa í t.d. í hádeginu eða þegar það er eitthvað í kvöldmatinn sem hentar ekki fyrir lítil börn. Ótrúlega einfalt og fljótlegt, tekur án gríns max 5 mínútur. Hakk (60-70 g passar fyrir litla minn í eina máltíð) Hakkaðir tómatar (ég elska þessa í glerlöskunni frá Gestus og á hana alltaf til í ísskápnum) Kotasæla Hakki…
Núðlur í nesti
Núðlur eru frábær matur til að hafa í vikulok því út í þær má nýta ýmsa afganga og það sem til er í ísskápnum. Tilvalið sem nesti í vinnu eða skóla og þær eru alls ekki síðri kaldar. Það er hægt setja hvað sem hugurinn girnist út í og krydda með ýmsum kryddum, en hér ætla ég að deila vinsælustu samsetningunni á okkar heimili: 1 pakki eggjanúðlur 3 egg Kjúklingur, eldaður, magn eftir smekk 1 Rauðlaukur, skorinn í þunnar ræmur Gulrætur, skornar í þunna strimla, magn eftir smekk 2-3 tsk sesamolía Olía til steikingar, góður slatti Vatn sett í pott og suðan látin koma upp, slökkt undir og núðlurnar settar útí og látnar…
Bananabrauð
Hún Júlíana á Mamie.is snappinu deildi í sumar uppskrift af ótrúlega einföldu, bráðhollu og góðu bananabrauði sem ég alveg féll fyrir og ég fékk leyfi hjá henni til að deila uppskriftinni með ykkur hér. 1 1/2 bolli hafrar 1/4 tsk salt (ég nota alltaf Maldon eða Himalaya) 1 tsk matarsódi (ég nota ál frían frá Kaja Organic) 1/2 tsk vanilludropar (ég nota hreint vanillu duft í staðinn, 1/4 tsk) 1 dós kókosjógúrt frá BioBú (ég á það sjaldnast til og nota í staðinn 170g af Ab mjólk) 1/4 bolli ólífuolía 2 egg 2 vel þroskaðir og stappaðir bananar Öllu blandað saman og sett í vel smurt form, reyndar enn betra að klæða það með…
Pizzu bitar í nestisboxið
Að útbúa spennandi nesti fyrir börnin í skólann er alveg meira en að segja það stundum. Á okkar heimili er lagt mikið uppúr því að þau fari með ávexti og grænmeti með sér. En þau tauta nú stundum um það að „allir“ hinir fái að koma með brauðmeti eða annað með sér í nesti. Það er því gaman að bjóða stundum uppá einhverja tilbreytingu í nestisboxið. Ég spyr börnin gjarnan hvað þau langi að taka með sér og 9 ára sonur minn svarar nánast alltaf því sama: „Pizzu“, enda er hann forfallinn pizzu aðdáandi drengurinn. Ég ákvað því að búa til nestisvæna pizzu og útkoman sló í gegn meðal allra á heimilinu, meira…
Kókos banana möffins
Þessar eru ótrúlega mildar og góðar á bragðið, mátulega mjúkar og henta vel í litlar hendur. Yngsti minn alveg eeeellllskar þessar. 3 dl haframjöl 1,5 dl hveiti 0,5 dl kókosmjöl 1 tsk lyftiduft 1 tsk kardemmommur (duft) 4 msk kókosolía (fljótandi) 1 egg 2 dl kókosmjólk 1 banani 1 dl rifið epli Kókosmjöl til að strá yfir Blandið saman öllum hráefnunum, stappið bananann og bætið úti. Hrærið vel saman og setjið í muffinsform og stráið kókosmjöli yfir. Bakað við 180 gráður í uþb. 20 mínútur. Gott að setja þær sem eftir verða beint í frystinn og eiga til að grípa í. Alls ekki verra að hita þær svo örlítið áður en á að…
Banana vöfflur
Ljúffengar vöfflur sem passa með nánast hverju sem er. Það er vel hægt að bera þær fram með smjöri og áleggi, rjóma og sultu eða eins og hér, frískandi hindberja sultu/dressingu. Mér finnst gott að gera vöfflurnar litlar því þá henta þær fyrir smáar hendur. Pjakkurinn minn er alsæll þegar hann fær svona í vöfflu í hönd og kjammsar á þeim eintómum með bestu lyst. Þessar vöfflur henta líka vel í nestisboxið hjá eldri börnum. Gott að frysta og lítið mál að velgja þær aðeins í brauðristinni eftir að þær hafa þiðnað. 50g haframjöl 50g hveiti 50g heilhveiti 2 tsk lyftiduft 1/2 tsk hreint vanilluduft 1 dl vatn 1/2 dl kókosmjólk 1 egg 2…
Öllebröd
Öllebröd eða øllebrød eins og það heitir á dönsku er mjög vinsælt að gefa börnum í Danmörku enda Danir þekktar rúgbrauðsætur. Öllebröd hefur líka verið vinsælt hjá öllum mínum börnum. Í Danmörku er notað rúgbrauð í öllebröd en ég hef notað maltbrauð hérna heima. Íslenska seydda rúgbrauðið sem við þekkjum hentar ekki vegna þess að það inniheldur ALLT of mikinn sykur og öll dönsku rúgbrauðin hér á markaði virðast flest ef ekki öll innihalda kjarna sem ekki er hentugt fyrir lítil börn. Þetta er sáraeinfalt að búa til og ég hvet ykkur til að prófa 2 sneiðar maltbrauð 1 1/2 dl vatn 1/2 dl brjóstamjólk, þurrmjólkurblanda eða stoðmjólk 1 tsk fita Brjótið brauðið…
Hindberja og bláberjamauk
Ferskt og frískandi sem gott er að drekka úr skvísu og eiga sem teninga í frysti til að setja útí grauta eða jafnvel AB mjólk sé barnið farið að borða slíkt. 4 epli 3/4 bolli hindber 3/4 bolli bláber Eplin þvegin, afhýdd og skorin í litla bita, sett í gufusuðusigti og látin sjóða í 10 mínútur, þá er hindberjum og bláberjum bætt úti í og látið gufusjóða í nokkrar mínútur í viðbót eða þar til allt er mjúkt. Maukað saman með töfrasprota eða stappað saman með gaffli fyrir grófari áferð. Geymist í 3-4 daga í ísskáp í vel lokuðu íláti og 3 mánuði í frysti
Grasker með sætum kartöflum og mangó
Grasker eða Butternut Squash er dásamlega gott á bragðið og tilvalið að nota í barnamat. Þetta mauk er mjög gott og vel hægt að nota þetta sem meðlæti fyrir alla fjölskylduna með mat, en er þá haft í þykkara lagi, meira eins og kartöflumús. 1 Butternut Squash grasker 2 litlar sætar kartöflur eða 1 stór 1 vel þroskað mangó 1-11/2 bolli kókosmjólk Graskerið er skorið í tvennt endilangt, skafa þarf steinana í burtu ásamt kjarnanum með skeið. Graskerið er sett í eldfast mót með sárið upp og bakað á 175°C í 35-45 mínútur, eða þar til auðvelt er að stinga gaffli í það. Þegar graskerið er fullbakað er það tekið úr ofninum og…